25.2.2025 | 11:58
Stórgóð grein, þörf og vel skrifuð.
Of margar þekktar brotalamir eru á hinu illa vanfjármagnaða íslenska geðheilbrigðskerfi þar sem vöntun er á hugvíkkandi viðmóti og einstaklingsbundnum lausnum.
Penninn er í mörgum tilfellum máttugri en sverðið. Það sannar hinn geðþekki Atli Steinn Guðmundsson enn eina ferðina með umfjöllun sem verður að eiga sér stað, öðrum stöðum fremur á Íslandi. Ekkert kerfi er fullkomið en það hafa einfaldlega of margar þekktar brotalamir komið fram varðandi íslenska geðheilbrigðskerfið sem er auk þess illa vanfjármagnað sér í lagi ef tekið er tillit til mikilvægis. Eins og m.a. Geðhjálp hefur bent á þá vantar verulega upp á að notendur taki þátt í að móta kerfið sjálft en til þess þá verðum við öll (ekki síst fagfólk) að vera með opið viðmót. Það er engin ein aðferð sem dugar öllum og því verða allir að vera tilbúnir, rétt eins og Áslaug, til þess að víkka sjóndeildarhringinn (þar er ekki eingöngu átt við notkun hugvíkkandi efna, ekki síður hugvíkkandi viðmóts), því einstaklingsbundnu lausnirnar er ansi oft að finna þar.
![]() |
Langaði ekkert meira en að láta mér batna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2025 | 13:54
Blessuð sé minning Gylfa.
Eflaust muna margir eftir þessu: https://youtu.be/v-u2NMzaduE?si=GuGz27g_8u7bQijm
Margar minningar æskunnar tengdar Gylfa, órjúfanlegum böndum.
![]() |
Andlát: Gylfi Pálsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í dómi Landsréttar er vísað til ungs aldurs mannsins, Maxence Paul Daniel Johannes, en hann er fæddur árið 2022. Einnig að hann hafi játað brot sitt og verið samvinnufús við lögreglu.
![]() |
Milduðu dóm vegna kókaínsmygls í niðursuðudósum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2022 | 09:28
Hættuástand - 650.000 kr. á hvert sængur- og kodda sett?
117 milljónir í hagnað - Á bakvið hagnaðinn er sala á 180 sængum og koddum.
Skv. þessu þá hefur hvert sett (ein sæng og einn koddi) kostað að meðaltali um 650.000 kr.
Þetta hljóta að þykja stórfréttir en skapa um leið mögulegt hættuástand. Margir muna eflaust eftir minkabúinu, sem min(n)kaði og min(n)kaði þar til það var búið.
Munu nú allir Íslendingar rjúka upp til handa og fóta og byrja að framleiða sjálfbærar dúnvörur?
Nema einhverjum hjá mbl.is hafi orðið fótaskortur á lyklaborðinu og þetta hafi í raun og veru átt að vera 1.800 sængur og koddar?
Sem þýðir samt um 65.000 kr. pr. sett af sæng og kodda.
Vonandi var þetta innsláttarvilla, annars gætum við verið í djúpum dún.
![]() |
Dúnsængur fyrir 120 milljónir kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2021 | 13:10
Sóttkvíarhótelum breytt í farsóttarhús...
![]() |
17 vélar lenda Morgundagurinn prófsteinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2019 | 12:16
Sama gildir oft um sölu(umboðs)aðila eins og PayPal!
Kannski ágætt að vekja athygli fólks á því að sama gildir um ýmsa sölu- og/eða söluumboðsaðila á netinu eins og til dæmis PayPal.
Vakti athygli á þessu á Twitter: https://twitter.com/SolviSays/status/1181545277204901888
![]() |
Ekki falla í þessa ferðamannagildru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2019 | 14:30
Viður og Vindur...
Félagarnir Viður og Vindur unnu saman á smíðaverkstæði sem nemar. Einn föstudag voru þeir mjög léttir í skapi og ákváðu að bregða á leik. Viður gleymdi sér aðeins í gleðinni og batt Vind fastan við súlu. Allt í einu kom "kallinn" inn og varð alveg brjálaður. Eftir að hafa heyrt lýsingu á atburðarásinni þá leysti hann Vind og rak Við!
Það virðist ekki vera mikil sjálfs"Efling" lægra settra starfsmanna í gangi hjá Eflingu!
![]() |
Staðfestir að frásögn Þráins sé rétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2019 | 07:37
Er þetta 'setup-ið' fyrir næsta 'bankarán?' (Mogga bloggið virðist ekki leyfa íslenskar kommur í fyrirsögn)
Er þetta setup-ið fyrir næsta bankarán?
Flóknir útreikningar - Bankasýsla ríkisins, sett á stofn fyrir TÍU árum - til FIMM ára = Enn bólar ekkert á tillögu nefndarinnar varðandi sölu ríkisbankanna.
Beðið eftir því að virði bankanna lækki, svo eru þeir seldir vinum og kunningjum (inn- eða erlendum) á lægra verði með vænni vel dulinni umsýsluþóknun?
![]() |
Verðmæti ríkisbanka gæti rýrnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.3.2019 | 12:49
Ekki bara á Íslandi sem typpin vega þungt.
Því miður er þetta hnattrænt vandamál sem ekki sér fyrir endann á.
Typpavísur
ekki sjaldan
í svona málum
að dómarar hnippi
í löglærðan aðila
en þá helst með typpi
hvorki valin aldan
né báran stök
jafnvel þó viðkomandi
typpalingur
sé með stórmál í knippi
Meira um þung typpi, þó erlend séu: https://www.mbl.is/frettir/erlent/2019/03/29/karllaeknar_med_17_prosent_haerri_laun/
![]() |
Gagnrýna skipun skiptastjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2019 | 09:17
Þung typpi
Typpi vega greinlega þungt í launaskala breska heilbrigðiskerfisins.
Hvað er eiginlega í gangi og hvað þurfum við að gera til þess að breyta þessum rugl kynbundna launamisrétti?
Ekki eins og það sé kynbundinn munur á kvenkyns og karlkyns læknum, fyrir utan að allir karlmenn eru svín, auðvitað.
![]() |
Karllæknar með 17% hærri laun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)